Þankagangar mínir

Kópavogsmærin

07.05.2009 15:35:47 / erobic

Haukar Íslandsmeistarar 2009

Vá hvað útslitaleikurinn var flottur...  Því miður sat mærin heima og kvatti sína menn gegnum TV... ohhh frekar lame sko... hefði alveg viljað vera á leiknum en þar sem ég þurfti að vakna 5 morguninn eftir vissi að það yrði heavy djamm framundan hefðu þeir unnið.. ákvað að vera skynsöm og halda sig heima við....:cry:´  En HAUKAR TIL HAMINGJU MEÐ TITILINNN.

Birkir minn var að sjálfsögðu langflottastur nema hvað 8)  Hrikalega stolt af kauða...  Loksins komin í smá frí frá boltanum, tími til að sinna eiginkonunni og börnum í smátíma  :haha:  Að sjálfsögðu bíður eftir kallinum aðgerðalisti :lol:... sem ég tek fram eftir helgina.. gefa honum nokkra daga til að koma sér niður á jörðina eftir sætan sigur :haha:

12 dagar í Köln til elsku Svölu minnar.. vá hvað mig hlakka til að komast aðeins í burtu smá húsmæðra orlof framundan vonandi í sól og  afslöppun.. að sjálfsögðu sötrar mærin hvítvín í fríinu, nýtur þess að sitja á kaffihúsum sleikjandi sólina...múhaaaaaaaaaaaaa

Nóg af djammi framundan.... úfffffffff er að segja ykkur er orðin allt of gömul fyrir að fara út bæði kvöldin... Vinnupartý hjá kallinum á föstudagskvöldinu þar sem Páll Óskar ætlar að skemmta liðinu (mín verður þó að halda sér á mottunni... spinna á laug í 90 mín ;)  )  á laugardagskvöldinu er svo lokahófið í handboltanum.. sem sagt þéttskipuð dagskrá framundan.....

Annars eigið góða helgi elskurnar.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 17:17:17 / erobic

Haukar í úrslit nema hvað

Vá hvað það er æðisleg tilhugsun  hugsa til þess að þetta tímabil er alveg að verða búið og bóndinn loksins að fara í smá frí love itttttttt.  
Búið að vera nóg að gera hjá minni... hef verið að kenna mjög mikið sl vikur allt upp í 4 tíma á dag bara gaman...  Líkaminn orðin pínu þreyttur og ætla ég að verðlauna mig með að skella mér til Köln til Svölu minnar eftir þrjár vikur............ohhh verður geggjað að komast í sól og bara afslöppun.... búin að lofa sjálfri mér að vera dugleg í hvítvíninu og Mohitó múhaaaaaaaaaaaaaa.................... 

Svo er snúðurinn minn búin að bóka ferð til Parísar í júlí... ætlum að eyða 5 dögum þar fara á tónleika með U2 :haha: já sælllllllllll þetta verður geggjað.. kauði keypti dýrustu og bestu sætin... verður bara gert einu sinni og þá er það líka gert með stæl....8)8)

Annars smá saumó hittingur í kvöld... mærin ætlar að skrópa á fyrsta úrslitaleikinn hjá kallinum og bruna í staðinn upp í Mosó.... annars eru ekki allir að komast í sumarfílingnn... ótrúlegt hvað maður verður léttari í lund um leið og smá gott veður lætur sjá sig...

Over and out Mærin

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2009 21:13:39 / erobic

Ekki að nenna þessu

Vá hvað maður er orðin latur að blogga eftir að maður varð háður facebook8|

Allt gott að frétta héðan úr kópavoginum.. Nóg að gera hjá öllum.. hef verið að kenna frekar mikið sl vikur, Saga var að klára Herranótt með MR stóð sig með sóma í leikritinu með hljómsveitinni að spila á fiðluna :haha:   Þessi elska var að hugsa um að hætta á fiðlu en snérist hugur eftir alla erfiðisvinnuna sl 2 mánuði við uppsetningu á sýningunni...
Adela mín skrapp til Eyja sl helgi og var í dekstrinu hjá Ömmu sinni nema hvað :haha:

Við skötuhjúin vorum því barnlaus sem var bara notalegt... samt mjög rólegt hjá okkur um helgina sem var fínt.. smá sötr á laugardagskvöldinu rólegt og notalegt sofið út í gær og legið í leti allan gærdaginn... ekki hægt að hugsa sér betri sunnudaga en það.. Erla vinkona og Þórey voru svo í mat hjá okkkur í gærkvöldi.. Birkir töfraði fram geggjað Humarpasta kaloríubombu dauðans... :haha:

Annars allt við það sama bara... eru einhverjir ennþá nokkuð að lesa þetta blogg!!!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2009 14:49:29 / erobic

Stolta mamman

Ó já hún Saga mín er alger hetja... veit þið vissuð það fyrir en þessi elska er búin að standa í ströngu sl vikur..  Hún var(er) að taka þátt í Herranótt þ.e. leikrit sem MR er að setja upp, búin að æfa eins og geðsjúklingur með krökkunum sl vikur, var frumsýningin sl föstudag...  Alveg hissa bara á að hún sé ekki búin að fá nóg af fiðlunni núna þar sem hún er búin að spila á hana út í eitt :haha:  Svo bætist náttla við allt námið sem þessi elska er að reyna að sinna samhliða leikritinu og hefur því verið lært frekar lítið upp á síðkastið... ekki hefur það þó komið niður á þessari elsku þar sem einkunirnar hennar úr skyndiprófunum er bara góðar.... er að segja ykkur það þessi krakki er alger snilli :haha:
Hef því sama sem ekkert séð þessa elsku í nokkrar vikur verður ekkert smá næs þegar hægist um hjá henni og maður fær að sjá framan í hana endrum og eins8)

Haldið að mærin hafi ekki skellt sér tvisvar sinnum í bíó í vikunni... ja hérna hér :d hefur ekki gerst í mörg ár svei mér þá... Skellti mér með Mörtu minni á fimmtudagskvöldinu að sjá He not that into you... í lúxussal í Smárabíó alger snilld...  Svo í gærkvöldi gisti Adela og Saga hjá ömmu sinni,  ákváðum við Birkir að fara létt út að borða og svo í bíó... í þetta sinn sáum við Confessions of a Shopholic.... er að segja ykkur það held það hafi verið tveir karlmenn á sýningunni ... en myndin ágætis afþreying.. get alveg mælt með þessum báðum myndum.

Barnaafmæli á eftir svo þessi helgi hefur bara verið allt of fljót að líða og bara yndisleg...  Kallinn hrikalega duglegur skúraði allt út fyrir kelluna áðan og er í þessum skrifuðu orðum að þrífa bílinn að innan og utan... alger yndi þessi elska....

Kveð að sinni Mærin

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2009 10:21:31 / erobic

Norn á strákústi

Fór með mér út í morgun :haha:  Sú stutta var alsæl með búninginn sem amman og afinn frá Eyjum fjárfestu handa prinsessunni sl helgi.. Við tekur svo vonandi skemmtilegur dagur í skólanum hjá prinsessunni þar sem þau slá köttinn úr sekknum og fá ís í eftirrétt hehe..

Það var heljarinnar dekur í gangi hérna sl helgi.. tengdó komu frá eyjum og dekstruðu við heimilismeðlimi bigtime... buðu okkur út að borða (réttara sagt var Adela búin ákveða að þau skildu bjóða okkur út að borða hehe á laugardagskvöldinu...  Enduðum kvöldið svo á að taka í spil.. bara næs..
Sunnudagskvöldinu var framreyddur Humar með öllu tilheyrandi hmm.. bara geðveikt... litla skrapp svo í heimsókn um kvöldið með ömmu sinni og afa, Birkir bauð frúnni í bíó á meðan :haha:  heimabíó reyndar heheh.. en ferlega notalegt og rólegt bara... Sem sagt enn önnur frábær helgi að baki..   Strax farin að hlakka til næstu helgi  þá fær bóndinn helgarfrí frá boltanum vúhú... cant wait... langar svo að gera eitthvað í tilefni þess... helst fara út úr bænum :haha:  er einhver með tillögu hvað er hægt að gera með stuttum fyrirvara!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2009 16:50:12 / erobic

Á eina dramadrottningu

Litla prinsessan mín er  hreint út sagt frábær...  Þessi elska á það til að gleyma að borða í langa tíma,skilur svo ekkert í því þegar henni verður flökurt og fær magaverki... Það var hringt úr skólanum í gær, tilkynnt að barnið væri orðið veikt...

Birkir gerði nokkrar heiðarlegar tilraunir til að ná í mig.. en ótrúlegt en satt þá hafði ég gleymt símanum heima hafði þ.a.l. ekki hugmynd um að hringt væri úr skólanum... Stuttu seinna kom ég heim, á sama tíma kemur Birkir með Adelu í fanginu volandi og aumkaði sér þvílíkt... :haha:  þekki mína dömu sko alveg og þekki því gráturinn eftir að hafað náð að róa hana niður talað aðeins við  hana þá tjáði þessi elska mér að henni væri svo illt í maganum.... ég kveikti á perunni um leið og bauð henni að borða..  þessi elska kláraði kjötbollur frá deginum áður ásamt tveimur flatbrauðum með hangikjöti og tveimur kexökum... þá hafði hún ekki viljað nestið sitt né hádegismatinn þ.a.l. ekki borðað neitt síðan rétt rúmlega sjö um morguninn 8|8|  þarna var klukkan orðin rúmlega þrjú svo það var ekkert skrítið að barnið væri komið með hungurverki af hungri!!!!!!!!

Er að segja ykkur þetta er ekki í fyrsta né annað skipti sem þetta kemur fyrir... gerist allt of oft..skil ekki hvernig það er hægt að komast af fleiri klst án þess að nærast!!! ég meina ég verð brjáluð í skapinu ef ég borða ekki á 3 til 4 klst fresti!!!!!!!!!!!   Skrifa þessi gen á mömmu hans Birkis hún á þetta alveg til að borða ekki heilu dagana......  Svo furðar fólk sig stundum á því hversu horuð blessað barnið er úffff.

Sl helgi var óskup róleg... passaði föstudags nóttina fyrir Viggu og Hróar... við Adela vöknuðum eldhressar kl átta á laugardagsmorgun til að leika við litla frænda :haha:  Var svo búin á því eftir vikuna að ég steinsofnaði fyrir framan TV á laugardagskvöldinu yfir fréttunum.... Marta vinkona kíkti aðeins í smá létt spjall og nart.... sofnaði meira að segja á meðan hún var hérna í heimsókn... gat ekki haldið mér vakandi yfir myndinni hehe þvílíkur lame gestgjafi:s    Sunnudagurinn var svo bara náttfatadagur... bara yndislegt að eiga stundum svona rólega daga :haha::haha:

Later aligator......

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2009 11:04:58 / erobic

Afmæli

Elsku mútta mín á afmæli í dag :haha: stórafmæli meira að segja.. Elsku Mamma innilegar hamingjuóskir með daginn.. Hlakka til að sjá þig í kvöld... Afmælisknús frá mér...

Þessi vika hefur verið ansi viðburðarík, búin að vera upptekin alla daga og öll kvöld.. Fór í saumó á miðvikudagin með yndislegum skvísum...Þar töfraði Ingibjörg fram geðveika fiskisúpu ásamt fullt af bakkelsi og geggjaðri franskri súkkulaðiköku í eftirrétt :haha:  vá hvað það var borðar....
Nú ígærkvöldi  var var svo aftur saumó í þetta sinn hjá mér... hitti aftur yndislega skvísur.. áttum frábæra kvöldstund saman sem samanstóð af ofáti allt kvöldið... komu allar með kræsingar með sér og herre gud.. það var borðað svona í c.a.3 klst !!!! enda ætlaði ég aldrei að sofna í nótt var bara steinn í maganum á mér...

  1. Til að toppa það ætla ég ásamt Sillu systur að elda dýrindis nautakjöt og alles í kvöld fyrir afmælisbarnið :haha:  sem sagt þessi vika hefur einkennst af ofáti:frown: BIGTIME þar sem mærin kann sér náttla ekki hóf þá er borðað þangað til ég get ekki troðið mig meira út... Eðlileg not............

Kallinn í handboltaferð svo ég verð grasekkja fram á mánudag... róleg helgi framundan með prinsessunum mínum.. rólegheitin á að vera í fyrirrúmi.... :d
Eigið góða helgi elskurnar mínar..

p.s. mamma njóttu dagsins í botn... maður á bara afmæli einu sinni á ári...:haha::haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2009 14:52:18 / erobic

Kærkomið helgarfrí

Vá hvað ég elska föstudagana :haha:  Ekkert eins yndislegra að vita að maður geti eytt góðum tíma með sínum nánustu alla helgina...  Í kvöld ætlum við systurnar að hittast og spila póker alger snilld að sjálfsögðu fá kallarnir að fljóta með 8)

Á morgun er svo planað að hafa kósý rómókvöld... ætlum að hafa Humar og Hvítt ahhh :haha:  get ekki beðið... Sem sagt góð helgi framundan hjá mér.... Endum helgina á því að skella okkur með Adelu síðan í bíó á sunnudeginum....  Svei mér gerast helgarnar nokkuð betri en þetta.....

Eigið góða helgi... Knús og Kram  Mærin

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 10:27:54 / erobic

Sælgætisgrís

Vá hvað ég get ansi oft verið pirruð út í sjálfan mig... Bara get engan veginn sleppt sælgætinu.. Þessi helgi einkendist af miklu sælgætisáti hjá mærinni :^)  svo hellist samviskubitið yfir mann og maður verður ýkt pirraður og fúl út í sjálfan sig.. alger vítahringur sem virðist vera ansi erfitt að yfirstíga:whut:

Helgin var fín fyrir utan slappleika á laugkvöldinu og í gær.. Skrapp í Kringluna og chillaði þar heillengi, seinnipartinn fórum við svo með Adelu í heimsókn til Beggu og Steina og enduðum í æðislegum dinner hjá þeim... takk elsku vinir.. kvöldið var yndislegt þangað til ég var orðin ansi slöpp.. svei mér þá held bara að ég hafi ofkeyrt mig sl viku og líkaminn því verið ansi lúinn..  Ætlaði að gera svo margt í gær en fór ekki úr náttfötunum allan daginn.  Birkir skrapp með Adelu í bíó á meðan ég bjó til rútínu fyrir spinning og morgun þrekstímann hjá mér í morgun.. 

Það var ekki kveikt á TV hérna alla virku dagana sl viku... ég var ekki heima hjá mér eitt einasta kvöld þá viku fyrr en á föstudagskvöldinu en þá fékk Viktor Ísak að gista hérna hjá okkur, mamma og pabbi komu í mat til okkar:haha:  Bóndinn töfraði fram þvílíkan góðan fiskrétt sem allir borðuðu með bestu lyst... Kvöldið endaði síðan í spilamennsku við litla frænda,sátum við Birkir til rúmlega tólf að spila gúrku við þessa elsku :haha:
Það var líka yndislegt að setjast fyrir framan imbann á sunnudaginn og horfa á úrslitaleikinn í handbolta og náði meira að segja að horfa á eina mynd með kallinum um kvöldið8)

Ný vinnuvika framundan og aðeins minna að gera hjá mærinni á kvöldin.. sé jafnvel fram á að vera heima hjá mér eins og 2 kvöld þessa vikuna hehe..

Over and Out  Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2009 10:32:14 / erobic

Æfingar og enn meiri Æfingar

Þannig var síðasta vika hjá mér... æfði frekar mikið á milli þess sem ég var að skipuleggja og búa til rútínu læra að telja takta, rifja upp gamla takta í pallaleikfimi ásamt fleiru hehe:d

Búin að vera duleg að sækja fullt af tímum, shape, pallatíma, Interval tíma svona til að sjá hvernig aðrir kennarar kenna...Enda var mærin rosalega þreytt eftir 90 min spinningstímann á laugardaginn... Ætlaði að liggja með tærnar upp í loft en fór ekki alveg svo... fékk Emmu og Írenu í næturgistingu alltaf gaman að hafa þessar elskur:haha:   Þórey kom aðeins á laugardagskvöldinu í mat líka....  Um nóttina fékk svo Adela gubbupest svo það var lítið sofið þá nóttina... vorum við hjónakornin því frekar meygluð á sunnudeginum.

Annars var bóndinn mega duglegur alla helgina.. Hann bónaði og þreif báða bílana hátt og lágt...Þvílíkur dugnaður í kallinum...var frí hjá kauða í handboltanum en þessi elska sló sko ekki slöku við.. skellti sér í 90 mín spinningstíma til mín á laugardeginum og eftir að hafað þrifið bílana að innan á sunnudeginum tók hann sig til og fór út að hlaupa...

Pabbi átti afmæli á sunnudeginum hvorki meira né minna en 65 ára afmæli... stórafmæli sko.... því enduðum við helgina á því að fara í lúxus dinner til múttu og pabba alger snilld...

Frumburðurinn er alltaf á fullu.. er byrjuð í ræktinni og skellti sér í pallatíma með þeirri gömlu í gær og skemmti sér konunglega...svo er þessi elska að taka þátt í forkeppni söngvakeppninnar hjá MR sem sagt alltaf nóg að gera hjá þessari elsku...

p.s verið dugleg að láta heyra i ykkur... gaman vita hverjir lesa þetta blessaða blogg..
Tchussí

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 14:40:01 / erobic

Tíminn flýgur

Vá spáið í því janúar er bara að verða búin:!::!:ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt.
Búið að vera nóg að gera hjá mér.. var að taka við fleiri tímum.. ætla að kenna morgunþrek á mán, mið og fös kl 8:30 í spönginni svo það fer mikill tími í að undirbúa þetta og læra inn á tímana á næstunni.. Ásamt spinning þá er ég bara megasátt að fá aðeins meiri vinnu svona á "krepputímum"

Síðasta helgi var kærkomin letihelgi ef letihelgi skyldist kalla... Birkir fór með strákunum upp í sumarbústað þar sem þeir slóu met í drykkju þá helgina hehe.. átti ég góðan tíma með prinsessunum mínum á meðan :haha: Fór reyndar að heiman á laug morgni kl hálf ellefu, kom ekki heim aftur fyrr en12 tímum seinna....en endaði kvöldið með frumburðinum minum í videóglápi og sælgætisáti hehe...

Sunnudagurinn var eitthvað bissý líka enda hlakka ég svo til næstu helgi.. búin að ákveða að fara ekkert úr náttfötunum á sunnudaginn fyrir utan að fara í mat til mömmu og pabba.

Keyptum okkur í síðustu viku Toyotu Avencis rétt rúma ársgamla með leðri og öllum aukahlutum bara sátt við bílinn... þarf að venjast því reyndar að keyra sjálfskiptan bíl aftur!!! held ég bara hef aldrei átt sjálfskiptan bíl áður :haha:

Ble Kristín

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 10:14:33 / erobic

Blogg Leti

Alveg óhætt að segja að ég hafi ekki beint verið sú duglegasta í að blogga undanfarið 8|   Hreinlega ekki nennt því.. En við Birkir skelltum okkur á þréttánda gleði í Vestmannaeyjum sl helgi..Reynda að ná í litlu prinsessuna í leiðinni sem hafði verið þar síðan annan í jólum í mestu yfirlæti hjá ömmu og afa..  Mikið djammað þá helgina úfff...maður er eiginlega ennþá bara að ná sér hehe..

Síðustu dagana hefur maður svo bara verið að leita sér að bíl gengur engan veginn að við séum á einum bíl þegar kalllinn þarf á æfingu oft í hádeginu og alltaf eftir vinnu 8| 

Annars er lífið að færast í fastar skorður aftur eftir jólin. Smá átak í gangi hjá mér núna þykist ætla að vera dugleg í mataræðinu og æfingum næstu vikurnar :haha:

Over and out  Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.12.2008 18:20:32 / erobic

Árið á enda

Jólin voru yndisleg hérna hjá okkur.. Að sjálfsögðu sló mærin persónulegt nýtt met í ofáti yfir hátíðirnar :!:  Kræstur hvað það var borðað.. enda hef ég ekki ennþá þorað að stíga á viktina.. 

Á sunnudaginn síðasta hélt Vigga systir svo skírnarveislu hérna hjá mér.. verið var að skíra loksins litla prinsinn hennar hann Jón Hilmar:d  Hann klikkaði ekki á því og sver sig vel okkar megin í ættina hehe því þessi elska hélt uppi aríu rétt á meðan presturinn skýrði hann, um leið og hann var komin í mömmufang þá steinþagnaði hann og sofnaði um leið.. alveg yndislegur bara:haha:

Saga mín veiktist hastalega á laugardaginn.. kom veik heim úr vinnu..Þegar ég vakti hana svo í hádeginu á sunnudeginum til að tía sig til var hún rosalega slöpp og bar sig illa.. Þar sem allt var fullu í undirbúning að græja skýrnarveisluna, Birkir á leiðinni á fund og að keppa þá þurfti þessi elska að hírast alein niður á læknastofu þangað til afi hennar sá sig fært að ná í hana eftir að hann var búin að skutla fullt af stólum og allskonar dóti hingað uppeftir..  Daman mældist með 40,7!! stiga hita hjá lækninum og bar sig illa loksins þegar afinn mætti á svæðið úff var með mega samviskubit að láta hana fara eina... ekki sá pabbi hennar sig fært að skutla dömunni því jú hann þurfti að fara á jólaball :^)  sorry gat bara ekki haldið kjafti hehe..

Annars er ég hálf ómöguleg... Adela fór með ömmu sinni og afa til eyja annan í jólum og verður alveg fram yfir þrettándan í eyjum... úfff allt of langur aðskilnaður... sakna snúllunnar minnar hrikalega mikið á meðan hún saknar foreldra sinna nánast ekki neitt.. hehe enda ekkert gert nema dekstrað við prinsessuna út í eitt.

Ble mærin

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2008 10:00:19 / erobic

Bráðum koma blessuð Jólin

Vá aðeins 2 dagar til Jóla.. Desember hefur gersamlega flogið áfram :haha:
Alltaf nóg að gera hérna megin eins og alltaf...  Á föstudagskvöldinu var partý hjá Birki "strákapartý" okkur Adelu Björtu var úthýst hehe:d dúlluðum okkar bara saman ferlega næs, kíktum upp í Mosó, í kringluna og enduðum hjá Sillu systur þar sem hún var að passa Jón Hilmar fyrir Viggu systur... Þar var skottan alveg búin að fá nóg af öllu útstáelsinu steinsofnaði þar hehe... Læddi mér heim rétt eftir miðnætti til að ganga frá eftir strákana... nýji sófinn okkar brotnaði í partýinu svo eitthvað hefur gengið á hjá strákunum hehe...já og magnið af áfengi held ég hafi aldrei gengið frá svona mörgum tómum vodkaflöskum og tómum bjórflöskum og dósum.. Alveg á hreinu að þeir hafi verið í marþon drykkju :!::!:

Eftir spinning á laug sótti ég prinsessuna og við skelltum okkur aðeins á Jólamarkaðinn í Hafnarfirði og fórum síðan og sóttum Birki sem var nett úldinn:haha: eftir einn afréttara heima hjá Beggu og Steina þá var hægt að pína bóndann í kringluna með okkur hinum... Plöntuðum þeim bara á kránni á meðan við Begga röltum um kringluna og krakkarnir fengu að fara í ævintýraland..  :haha:  Ágætis pössun fyrir alla 8)
:haha:
Í gær var svo heldur betur brett upp ermarnar.. Allt sett á fullt  fyrir hádegi í að gera jólaþrifin þ.e. Birkir sér um þau eins og ávallt... Adela og ég fórum með mömmu í kirkjugarðinn á meðan.. Komum heim og jólahreingerning var gerð í prinsessu herberginu... Greyið Birkir var sveittur allan daginn og langt fram á kvöld að þrifa... Ég sótti bara tengdó á meðan upp á flugvöll, fórum og  fjárfestu í Hreindýrakjöti til að borða á aðfangadag og náðum okkur í eldbakaðar pizzur á leiðinni heim...

Það er hefð hérna þegar skreytt er jólatréð þá er alltaf pöntuð pizza og ein rauðvín opnuð með... helvíti góð hefð hehe:d  Adela var gersamlega í essinu sínu að skreyta tréð... skreytti það á mettíma var að flýta sér svo mikið þessi elska...

Jólaspinning í hádeginu verður bara gaman.. hendi tengdó í kringluna á meðan svo þau geti klárað jólainnkaupin.... ótrúlegt en satt þá er Mærin bara búin að öllu fyrir utan að pakka inn nokkrum jólapökkum....



» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 09:06:59 / erobic

Sérvitur

Ég er alltaf að taka meira og meira eftir því hvað hún Adela Björt er að verða mikil sérvitringur í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur... þetta hefur verið að aukast talsvert síðan við fluttum heim..sem dæmi má nefna að hún þarf alltaf að klæða sig í vettlingana áður en hún fer í útigallann og hún brýtur upp á buxurnar á sértakan máta áður en hún fer í kuldastígvélin og ef ég geri það ekki rétt þá upphefst mikið dramakast sem ætlar engan enda að taka enda gefur hún sig alls ekki á mörgum sviðum (af sem áður var þegar maður gat alltaf talað skvísuna til)  Sama er að segja með fatnað hún klæðir sig á mjög sérstakan máta og það má alls ekki renna peysum upp í hálsinn á henni hvað þá setja hana í rúllukragapeysu það höndlar hún enganveginn!!8|

Hún greiðir sér mjög sérstakt og það má alls ekki hrófla við hárinu á henni bara alls ekki snerta það!! þá verður hún alveg brjáluð!!! kræstur gæti talið svona endalaust upp.. mér þykir þetta alls ekki sniðugt og er að reyna að slá á þetta hjá dömunni en pabbi hennar virðist alltaf taka fram fyrir hendurnar á mér og gerir þetta nkv eins og hún vill hafa hlutina.. sem ég er alls ekki sátt við... held það sé ekki sniðugt að ala svona upp í börnum.. því þetta versnar bara með hverri vikunni :s

En nóg um það styttist í jólin og orðið þokkalega jólalegt hjá mærinni hérna í kópavoginum.  Fór með dömuna í bekkjarpartý í gærdag eftir skóla þar sem krakkarnir fengu að mála á piparkökur og skipast á gjöfum var ferlega gaman af þessu...Nú svo er frumburðurinn að fara að syngja í kvöld í Seltjarnarneskirkju en kór MR ætlar að vera með tónleika þar í kvöld... endilega kíkja þangað ef ykkur vantar eitthvað að gera í kvöld :haha:
 

Kveð að sinni Mærin

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18