Þankagangar mínir

Kópavogsmærin

22.12.2008 10:00:19 / erobic

Bráðum koma blessuð Jólin

Vá aðeins 2 dagar til Jóla.. Desember hefur gersamlega flogið áfram :haha:
Alltaf nóg að gera hérna megin eins og alltaf...  Á föstudagskvöldinu var partý hjá Birki "strákapartý" okkur Adelu Björtu var úthýst hehe:d dúlluðum okkar bara saman ferlega næs, kíktum upp í Mosó, í kringluna og enduðum hjá Sillu systur þar sem hún var að passa Jón Hilmar fyrir Viggu systur... Þar var skottan alveg búin að fá nóg af öllu útstáelsinu steinsofnaði þar hehe... Læddi mér heim rétt eftir miðnætti til að ganga frá eftir strákana... nýji sófinn okkar brotnaði í partýinu svo eitthvað hefur gengið á hjá strákunum hehe...já og magnið af áfengi held ég hafi aldrei gengið frá svona mörgum tómum vodkaflöskum og tómum bjórflöskum og dósum.. Alveg á hreinu að þeir hafi verið í marþon drykkju :!::!:

Eftir spinning á laug sótti ég prinsessuna og við skelltum okkur aðeins á Jólamarkaðinn í Hafnarfirði og fórum síðan og sóttum Birki sem var nett úldinn:haha: eftir einn afréttara heima hjá Beggu og Steina þá var hægt að pína bóndann í kringluna með okkur hinum... Plöntuðum þeim bara á kránni á meðan við Begga röltum um kringluna og krakkarnir fengu að fara í ævintýraland..  :haha:  Ágætis pössun fyrir alla 8)
:haha:
Í gær var svo heldur betur brett upp ermarnar.. Allt sett á fullt  fyrir hádegi í að gera jólaþrifin þ.e. Birkir sér um þau eins og ávallt... Adela og ég fórum með mömmu í kirkjugarðinn á meðan.. Komum heim og jólahreingerning var gerð í prinsessu herberginu... Greyið Birkir var sveittur allan daginn og langt fram á kvöld að þrifa... Ég sótti bara tengdó á meðan upp á flugvöll, fórum og  fjárfestu í Hreindýrakjöti til að borða á aðfangadag og náðum okkur í eldbakaðar pizzur á leiðinni heim...

Það er hefð hérna þegar skreytt er jólatréð þá er alltaf pöntuð pizza og ein rauðvín opnuð með... helvíti góð hefð hehe:d  Adela var gersamlega í essinu sínu að skreyta tréð... skreytti það á mettíma var að flýta sér svo mikið þessi elska...

Jólaspinning í hádeginu verður bara gaman.. hendi tengdó í kringluna á meðan svo þau geti klárað jólainnkaupin.... ótrúlegt en satt þá er Mærin bara búin að öllu fyrir utan að pakka inn nokkrum jólapökkum....



Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.