Þankagangar mínir

Kópavogsmærin

27.01.2009 10:32:14 / erobic

Æfingar og enn meiri Æfingar

Þannig var síðasta vika hjá mér... æfði frekar mikið á milli þess sem ég var að skipuleggja og búa til rútínu læra að telja takta, rifja upp gamla takta í pallaleikfimi ásamt fleiru hehe:d

Búin að vera duleg að sækja fullt af tímum, shape, pallatíma, Interval tíma svona til að sjá hvernig aðrir kennarar kenna...Enda var mærin rosalega þreytt eftir 90 min spinningstímann á laugardaginn... Ætlaði að liggja með tærnar upp í loft en fór ekki alveg svo... fékk Emmu og Írenu í næturgistingu alltaf gaman að hafa þessar elskur:haha:   Þórey kom aðeins á laugardagskvöldinu í mat líka....  Um nóttina fékk svo Adela gubbupest svo það var lítið sofið þá nóttina... vorum við hjónakornin því frekar meygluð á sunnudeginum.

Annars var bóndinn mega duglegur alla helgina.. Hann bónaði og þreif báða bílana hátt og lágt...Þvílíkur dugnaður í kallinum...var frí hjá kauða í handboltanum en þessi elska sló sko ekki slöku við.. skellti sér í 90 mín spinningstíma til mín á laugardeginum og eftir að hafað þrifið bílana að innan á sunnudeginum tók hann sig til og fór út að hlaupa...

Pabbi átti afmæli á sunnudeginum hvorki meira né minna en 65 ára afmæli... stórafmæli sko.... því enduðum við helgina á því að fara í lúxus dinner til múttu og pabba alger snilld...

Frumburðurinn er alltaf á fullu.. er byrjuð í ræktinni og skellti sér í pallatíma með þeirri gömlu í gær og skemmti sér konunglega...svo er þessi elska að taka þátt í forkeppni söngvakeppninnar hjá MR sem sagt alltaf nóg að gera hjá þessari elsku...

p.s verið dugleg að láta heyra i ykkur... gaman vita hverjir lesa þetta blessaða blogg..
Tchussí
svala, skrifaði
passaðu þig nú að fara ekki yfir um!! kveðja frá uppáhalds nemanda þínum í köln";)
Fjóla skrifaði
Gott að allir hafa nóg að gera, manni leiðist ekki á meðan ;-)

Hefði sko viljað hitta ykkur gellurnar í gær.
Mærin skrifaði
hehe Svala vertu megadugleg :o)

Fjóla endilega næst þegar þú kemur í bæinn láttu okkur vita reynum að stíla á hitting þá :o) verðum að fá að hitta þig skvís

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.